Afli strandveiðibáta er enn undir því sem hann var á sama tíma í fyrra. Vantar rúm níuhundruð tonn upp á þau 8.752 sem landað hefur verið.
Búast má við að á næstu dögum fari að draga verulega saman með árunum, þar sem á þessum tíma í fyrra var veiðum lokið á þremur svæðum. Síðasti dagur 2017 á svæði A var 15. ágúst og á svæðum B og C lauk veiðum 17. ágúst. Árið 2017 skilaði alls 9.800 tonnum.
Yfirstandandi tímabil hefur verið strandveiðimönnum afar erfitt. Hér á skrifstofu LS var nefnt versta tíðarfar frá upphafi þeirra. Viðmælandi að vestan vildi hins vegar bæta um betur og sagðist hafa stundað færaveiðar á sumrin í þrjátíu ár og hefði hann aldrei fengið aðra eins ótíð og á þessu sumri.
Alls hafa 546 bátar verið á strandveiðum á árinu, sem er 48 bátum færra en í fyrra. Eflaust hefur lágt fiskverð í byrjun vertíðar og rúmlega eitthundrað prósent hækkun á veiðigjaldi haft þar sín áhrif. Þó engar leiðréttingar hafi enn verið gerðar á veiðigjaldi hefur afkoman ekki orðið eins slæm og allt stefndi í. Því er fiskverðinu að þakka sem tók heldur betur við sér. Meðalverð á mörkuðum það sem af er tímabilinu er um 16% hærra en á sama tíma í fyrra eða 235 kr/kg af þorski. Þá virðist það sem liðið er af ágústmánuði ætla að bæta um betur upp á 276 kr meðalverð á móti 224 krónum í fyrra.