Strandveiðar 2018 – samantekt

Tölur um afla á strandveiðum liggja nú fyrir.  Til að auðvelda mönnum upplýsingaleit hefur LS tekið saman í eina skrá tölulegar upplýsingar um veiðarnar í ár og í fyrra.  
  • Helmingi fleiri bátar með yfir 30 tonn en í fyrra – 82 bátar náðu því marki

Raufarhöfn (52).jpg
  • Misjafnt gengi milli svæða – bátar á A og B svæði með meiri afla en í fyrra, en minna hjá bátum á C og D svæði. 
  • Afli að meðaltali 17,8 tonn – mestur á svæði A, 21,5 tonn.
  • 9 bátar nýttu alla 48 dagana sem í boði voru, 23 bátar réru umfram þann fjölda í fyrra.
  • Stóraukin veiði á ufsa – afli fór úr 355 tonnum í 609 tonn.  Bátar á svæði D með helming alls ufsaflans.   
  • Alls 548 bátar stunduðu strandveiðar í ár sem er fækkun um 46 milli ára.
Sjá nánar
Strandveiðar   – aflahæstir, veiði í hverjum mánuði.