Aðalfundir svæðisfélaga – Snæfell og Smábátafélag Reykjavíkur

Nú fer í hönd tími aðalfunda svæðisfélaga LS.   Smábátafélag Reykjavíkur og Snæfell ríða á vaðið.  
Reykvíkingar halda sinn fund nk. föstudag 14. september í félagsmiðstöðinni í Grófinni og hefst fundurinn kl 13:00.  Innan Smábátafélags Reykjavíkur eru 41 félagsmenn.  
Formaður félagsins er Þorvaldur Gunnlaugsson.
Aðalfundur Snæfells verður á Kaffi Emil í Grundarfirði sunnudaginn 16. september og hefst fundurinn kl 16:00.
Snæfell er fjölmennast félaga innan LS með 120 félagsmenn.  
Formaður félagsins er Örvar Marteinsson.
 
Mikilvægt að allir félagsmenn mæti á fundina þar sem mörg mikilvæg mál eru nú í deiglunni.  Má þar nefna kröfu smábátaeigenda um leiðréttingu á veiðigjöldum, endurskoðun á fyrirkomulagi grásleppuveiða, strandveiðar og línuívilnun svo eitthvað sé nefnt.
logo snæfell copy.jpg
Félag smábátaeigenda í Reykjavík copy.jpg