Aðalfundir Árborgar, Sæljóns, Króks, Eldingar og Stranda

Aðalfundir svæðisfélaga LS standa nú sem hæst.  Félagsmenn eru hér með minntir á fundina og hvattir til að taka þátt í þeim.  Mörg mál brenna á smábátaeigendum eins og komið hefur í ljós á fundum Smábátafélags Reykjavíkur og Snæfells sem búnir eru.  Fyrirferðarmest hafa verið: 
  • Veiðigjöld
  • Strandveiðar
  • Krókaaflamarkskerfið
  • Línuívilnun
  • Byggðakvóti
  • Grásleppuveiðar
Við þau bætast önnur mál m.a. nýútkomin skýrsla starfshóps um faglega heildarendurskoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndunarsvæði.  Hópurinn hefur skilað ráðherra lokaskýrslu sem inniheldur m.a. tillögur sem smábátaeigendur geta ekki sætt sig við.
Næstu aðalfundir svæðisfélaga LS

Árborg – þriðjudaginn 18. september á Svarta Sauðnum í Þorlákshöfn.  
Fundurinn hefst kl 18:00.
Formaður Árborgar er Stefán Hauksson, Þorlákshöfn.
Sæljón – miðvikudaginn 19. september í Fjöliðjunni á Akranesi.  Fundurinn hefst kl 18:00.
Formaður Sæljóns er Jóhannes Simonsen, Akranesi.
Strandveiðifélagið Krókur – laugardaginn 22. september í Hópinu Tálknafirði.  Fundurinn hefst kl 13:00.
Formaður Króks er Einar Helgason, Patreksfirði.
Elding – sunnudaginn 23. september á Hótel Ísafjörður.  Fundurinn hefst kl 14:00.
Formaður Eldingar er Ketill Elíasson, Bolungarvík.
Strandir – sunnudaginn 23. september í Slysavarnafélagshúsinu á Hólmavík.  
Fundurinn hefst kl 20:00.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson, Drangsnesi.
Formaður og framkvæmdastjóri LS mæta á alla fundina.
logo_LSix á vef 2 copy.jpg