Áfram verður haldið með aðalfundi svæðisfélaga LS. Næstkomandi sunnudag verður fundað á Sauðárkróki og Skagaströnd.
Aðalfundur Drangeyjar – Smábátafélag Skagafjarðar
Sunnudaginn 30. september kl 14:00. Fundarstaður er Kaffi Krókur á Sauðarkróki.
Aðalfundur Skalla – félag smábátaeigenda á Norðurlandi vestra
Sunnudaginn 30. september, haldinn í Kaffi Bjarnarnes á Skagaströnd.
Fundurinn hefst kl. 17:00
Fréttir af frumvarpi ráðherra um veiðigjald gefur fullt tilefni til að menn fjölmenni á fundina og taki þátt í að móta stefnu smábátaeigenda.