Fullt hús hjá Sæljóni

Aðalfundur Sæljóns var haldinn 19. september sl.  Skagamenn fjölmenntu til fundar þar sem setið var á hverjum stól.  
Jóhannes Símonsen formaður Sæljóns opnaði fundinn og sagði frá því helsta sem á daga stjórnarinnar hefði drifið á starfsárinu. 
 
Sæljón lagðist gegn breytingum sem gerðar voru á strandveiðum.  Óttuðust eins og aðrir að vera stöðvaðir áður en veiðitímabili lyki.  Vaxandi krafa væri meðal Sæljónsmanna að Akranes verði skilgreint með vestursvæðinu, tilheyri svæði A.
IMG_8678.png
Formaður kvað fast að orði þegar hann ræddi um fyrirhugaðar lokanir á línu- og handfæraveiðar í Faxaflóa.  Kæmu tillögurnar til framkvæmda blasti ekkert annað við en að leggja árar í bát í orðsins fyllstu merkingu.
Jóhannes sagði það miður að allir smábátaeigendur á Akranesi væru ekki félagsmenn í Sæljóni og beindi þar orðum sínum að eigendum báta yfir 20 brúttótonnum.  Hann hvatti félagsmenn að ræða við þessa aðila og fá þá á fund þar sem þeirra baráttumál væru ávallt til umræðu á fundum smábátaeigenda.
Stjórn Sæljóns:
Jóhannes Símonsen formaður 
Guðmundur Páll Jónsson ritari
Rögnvaldur Einarsson gjaldkeri
Böðvar Ingvason meðstjórnandi
Guðmundur Elíasson meðstjórnandi
Tillögur Sæljóns til 34. aðalfundar LS