Hæstiréttur hefur birt dóm í málum útgerðanna Huginn ehf og Ísfélag Vestmannaeyja hf gegn íslenska ríkinu.
Fyrirtækin töldu sig hafa orðið fyrir fjártjóni vegna úthlutunar makrílkvóta á árabilinu 2011 til 2014. Skylt hefði verið að ákvarða makrílkvóta á grundvelli aflahlutdeildar. Reglugerðir sem Fiskistofa lagði til grundvallar aflakvóta hefðu hins vegar ekki kveðið á um slíkt sem leiddi til þess að fyrirtækin hefðu fengið úthlutað minni aflaheimildum á fyrrgreindu tímabili en þau hefðu átt rétt á. Fyrirtækin kröfðust þess að íslenska ríkið yrði dæmt skaðabótaskylt vegna þessa.
Hér eru skjámyndir af dómsorðum Hæstaréttar
Hætt er við að dómur Hæstaréttar eigi eftir að hafa mikil áhrif. Sérstaklega þegar horft er til skaðabótakrafna sem gætu numið milljörðum. Þá rótar dómurinn upp allri úthlutun í makríl þar sem aflamark áranna 2011 – 2014 hefði átt að byggjast á aflahlutdeild reiknaðri útfrá samfelldri veiðireynslu þriggja bestu árana sem voru 2008 – 2010, á 6 ára veiðitímabili 2005 – 2010.
Þess má geta að makrílveiðar smábáta voru þá lítt hafnar, aðeins 180 tonn veidd árið 2010 og 304 tonn á árinu 2011, sem var 0,1 og 0,2% af heildaraflanum. Árið 2016 veiddu smábátar 8.368 tonn sem var 5,4% af heildarafla á makríl það árið.