Við áramót er við hæfi að staldra við og rifja upp fiskverð sem sjómenn hafa búið við á síðastliðnum tveimur árum. Skoðað var uppboðsverð á fiskmörkuðum á óslægðum þorski og ýsu.
Taflan sýnir magn sem boðið var upp á árunum 2017 og 2018 og meðalverð sem uppboðið skilaði.
|
|
|||
|
2017 |
2018 |
||
Óslægt |
Tonn |
Kr / Kg |
Tonn |
Kr / Kg |
Þorskur |
33.591 |
238 |
35.194 |
254 |
Ýsa |
9.294 |
272 |
10.781 |
255 |
Þannig að betri mynd fáist á það verð sem fengist hefur á mörkuðum veitir næsta tafla lesendum upplýsingar um meðalkaupgengi þriggja gjaldmiðla, meðaltal þeirra og breytingar milli ára.
|
USD |
GBP |
EUR |
Meðaltal |
2017 |
106,5 |
137,1 |
120,2 |
121,3 |
2018 |
108,1 |
144,0 |
127,4 |
126,5 |
Styrking |
1,5% |
5,0% |
6,0% |
4,3% |
Að lokum eru sýnd gröf um meðalverð hvers mánaðar síðust tveggja ára.
Eins og sést á grafinu var meðalverð á óslægðum þorski allra mánaða ársins að undanskildum janúar og apríl hærra á síðasta ári en 2017
Andstætt við þorsk hefur verð á ýsu gefið eftir og var flesta mánuði lægra á árinu 2018 en það var 2017. Þróun verðs hefur þó verið í rétta átt hægur stígandi sem skilar desember í 24% hærra en í ágúst. Eins og sést var mikil lækkun á verði frá júlí og ágúst 2017, helsta ástæða þess var að framboð jókst um tæp 500 tonn milli mánaða, 124% aukning.