Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur skipað Halldór Ármannsson fv. formann Landssambands smábátaeigenda til að gegna formennsku í siglingaráði.
Hlutverk siglingaráðs er að vera ráðherra til ráðuneytis um siglinga-, hafna- og öryggismál sjófarenda.
Helstu verkefni sem siglingaráð kemur að er
• að móta tillögu að öryggisáætlunsjófarenda með Samgöngustofu
• að vinna að langtímaáætlun íöryggismálum sjófarenda, ásamt þvíað hafa eftirlit með framgangi hennarog stuðla að samstarfi þeirra aðila semað henni koma
• að veita umsagnir um lagafrumvörp ogdrög að reglugerðum er varðasiglinga- og hafnamál, ásamt EES-gerðum og innleiðingu þeirra
• að veita umsögn um tillögusamgönguráðs að samgönguáætlun hvað varðar málefni siglinga og hafna
• að stofna vinnuhópa um afmörkuð verkefni sem ráðið ákveður að ráðast í eðaráðherra felur því að vinna
• að fjalla um önnur mál á sviði siglinga og hafna að ósk ráðherra eða einstakraráðsmanna.
Halldór tekur við formennsku af Ásbirni Óttarssyni fv. alþingismanni.
Fulltrúi LS í ráðinu er Axel Helgason formaður.
LS óskar Halldóri til hamingju með formennskuna, jafnframt sem fráfarandi formanni er þakkað fyrir sín störf.