Makríllinn – allir sitji við sama borð

Stjórn LS kom saman til fundar 29. mars sl.  Fjölmargt var á dagskrá fundarins og verða á næstunni birtar ályktanir sem þar voru samþykktar.
Eitt þeirra málefna sem ofarlega er í umræðunni um þessar mundir er frumvarp um stjórn veiða á makríl.  Frumvarpið er á dagskrá Alþingis í dag.  Stjórnarfrumvarp sem Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mælir fyrir.
Stjórn LS samþykkti eftirfarandi ályktun um frumvarpið:
Frumvarp um stjórn makrílveiða hefur verið kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda.  Þar er gert ráð fyrir að aflamarki verði úthlutað á grundvelli aflahlutdeildar samkvæmt veiðireynslu á 11 ára tímabili.

Smábátaeigendur hófu fyrst veiðar á makríl að einhverju marki árið 2013.  Tímabil veiðireynslu á hins vegar að vera 2008 – 2018.  Stjórn LS lýsir undrun yfir að hér hafi verið kynnt frumvarp sem mismunar útgerðaraðilum eftir stærð og aðstöðu til veiða.  Smábátaeigendur höfðu engin tök á að afla sér veiðireynslu á fyrri hluta tímabilsins þegar makríllinn var á fjarlægum miðum, langt utan farsviðs þeirra. 

Stjórn LS krefst þess að tekið verði tillit til þessa aðstöðumunar við fullvinnslu frumvarpsins.
logo_LS14.jpg