Lög um strandveiðar

Í kvöld var frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða – strandveiðar – afgreitt sem lög frá Alþingi.  Breið sátt var meðal alþingismanna um frumvarpið sem marka má á atkvæðagreiðslu um það.  Já sögðu 43 þingmenn, 3 greiddu ekki atkvæði og 17 voru fjarstaddir.