Reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2018/2019 hefur verið gefin út. Helstu breytingar frá síðasta ári eru eftirtaldar:
• Heimilt að veiða á handfæri allt að 11.100 lestir samtals af óslægðum botnfiski.
• Heimilt er að óska eftir að strandveiðileyfi verði fellt úr gildi. Ósk um það þarf að berast
Fiskistofu í síðasta lagi 20. dag mánaðarins á undan niðurfellingu leyfisins. Eftir
niðurfellingu strandveiðileyfis er viðkomanda heimilt að stunda veiðar í atvinnuskyni
samkvæmt öðrum leyfum.
• Nota má aðrar aðferðir en handvirkt með talstöð (t.d. VSS-app) til að tilkynna brottför úr
höfn til vaktstöðvar siglinga.