Strandveiðar hafnar

Strandveiðar eru hafnar í 11. sinn.  Alls 257 bátar höfðu virkjað leyfi til veiða í dag á fyrsta degi strandveiða.  Eins og frá upphafi eru flestir bátar á svæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur) alls 123 sem er 9 bátum færra en í fyrra.
Taflan sýnir fjölda þeirra sem voru komnir með virk leyfi við upphaf strandveiða.

Svæði

2019

2018

2017

2016

A

123

132

176

182

B

36

41

74

83

C

23

29

47

51

D

74

82

77

97

Samtals

256

284

374

413

Að venju verða birtar aflatölur og fréttir af strandveiðunum hér síðunni í allt sumar.
Fjallað var um upphaf strandveiða í sjónvarpsfréttum RÚV (frá 6:20) og STÖÐ 2 í dag.