Alls eru 400 bátar komnir með heimild til strandveiða, sem er 10% fjölgun frá síðasta ári. Af þeim hafa 328 hafið veiðar og landað alls 452 tonnum.
Nokkrar sveiflur eru í veiðum milli svæða miðað við upphaf strandveiða á síðasta ári. Þannig hafa bátar á svæði D (Hornafjörður – Borgarbyggð) bætt verulega við sig á þeim 4 dögum sem liðnir eru af strandveiðitímabilinu. Afli þar er kominn í 150 tonn á móti 82 tonnum á sama tíma í fyrra. Aukningin liggur í fjölda róðra, sem endurspeglar tíðarfar á þessum tíma. Af sömu ástæðum eru aflatölur á svæði A (Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur) nú mun lægri en í fyrra.