Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla fyrir næsta fiskveiðiár. Ráðherra víkur í engu frá ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Í tilkynningu frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins segir ráðherra eftirfarandi:
„Það að byggja ákvörðun um leyfilegan heildarafla á grundvelli vísindalegrar ráðgjafar er ein af megin stoðum íslenskrar fiskveiðistjórnunar og tryggir sjálfbærni auðlinda hafsins til framtíðar. Árangur þeirrar stefnu er ótvíræður líkt og birtist meðal annars í því að hrygningarstofn þorsks hefur stækkað á undanförnum árum og hefur ekki verið stærri í tæp 60 ár. Hins vegar blasir við okkur í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar að það er nýliðunarbrestur í nokkrum tegundum en það er atriði sem þarf að bregðast við með frekari rannsóknum.
LS kynnti ráðherra þann 18. júní sl. tillögu um leyfilegan heildarafla í þorski á fiskveiðiárinu 2019/2020. Þar er ráðherra hvattur til að leyfa meiri afla en Hafrannsóknastofnun ráðleggur. Heildarafli verði 289 þúsund tonn í stað 272.411. Rökstuðningur fyrir aukningu liggur að mestum hluta í að undanfarin ár hefur þorskafli verið undir viðmiðunarmörkum sem aflaregla setur 20% af veiðistofni. LS telur að mismunur sem þarna verður til eigi að bætast við ráðgjöf hverju sinni. Að mati LS er hann um 17 þúsund tonn.
Helsta ástæða þessa mismunar er að ráðgjöf í júní 2018 fyrir yfirstandandi fiskveiðiár byggist á að veiðistofn yrði 1.357 þúsund tonn, en mælingar í ár sýna stofninn hins vegar 1.410 þúsund tonn.
Þar sem aflaregla stjórnvalda er viðurkennd af Alþjóðahafrannsóknaráðinu telur LS ástæðu til að ráðherra leiti til ráðsins í því skyni hvort framangreind útfærsla sé innan þeirra takmarkana sem ráðið setur.
Hér eru gríðarlegir hagsmunir í húfi og því full ástæða til að fá framangreindu svarað. Áætlað útflutningsverðmæti af 17 þúsund tonna þorskafla telur LS geti orðið 8,5 milljarðar. Það munar því um þessi verðmæti á þeim tímum þegar þjóðin þarf að glíma við versnandi efnahagshorfur sem stafa einkum af samdrætti í ferðaþjónustu og aflabresti í loðnu.