Tveimur tímabilum af fjórum er nú lokið á strandveiðum. Samanlagður afli í maí og júní er 9% meiri en á sama tíma í fyrra, 4.847 tonn. 91% aflans er þorskur sem jafngildir að búið er að veiða 40% af þeim 11.100 tonnum sem ætlaður er til strandveiða í ár. Á síðasta ári var viðmiðun í þorski 9.100 tonn og hlutfallið í lok júní komið í 45% – 4.134 tonn.
Afli júní í ár var nokkru lakari en í fyrra. Meðaltalsafli á hvern bát nú 4,5 tonn á móti 5,1 tonn í júní 2018. Svæði C var eina svæðið þar sem afli í júní jókst milli ára.
Aflahæstur strandveiðibáta nú um mánaðamótin er Héðinn BA 80 með 22,9 tonn. Skipstjóri Jóhannes Héðinsson.
Almennt er gott hljóð í strandveiðimönnum þrátt fyrir að tíðarfarið hafi ekki verið upp á það allra besta.
Aflabrögð þegar friður er eru svipuð og á síðasta ári.
Þá hefur verð á þorski sem seldur er á fiskmörkuðum hækkað um þriðjung milli ára. Fyrir óslægðan þorsk sem veiddur var á handfæri eru meðalverðin í maí og júní þessi:
Þorskur |
2019 |
2018 |
Maí |
282 kr/kg |
216 kr/kg |
Júní |
321 kr/kg |
240 kr/kg |
Alls hafa 562 bátar nú hafið veiðar á móti 497 í fyrra.
Aflahæstu bátarnir á hverju veiðisvæði eru:
Svæði A Héðinn BA 80 22,9 tonn 24 róðrarSvæði D Sæunn SF 155 22,5 tonn 24 róðrarSvæði C Birta SU 36 21,9 tonn 23 róðrarSvæði B Svala EA 5 17,9 tonn 22 róðrar
Listi yfir 10 hæstu.pdf á strandveiðum maí – júní, eftir svæðum.