Grásleppan kvótasett

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur birt drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórnun grásleppu). 
 
Drögin eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnarráðsins.  Umsagnafrestur er 12. júlí til og með 26. júlí 2019.   
Í frumvarpsdrögunum er lagt til að aflaheimildum á grásleppu verði úthlutað til allra báta sem eru með rétt til veiða á grásleppu samkvæmt gildandi lögum.
Horfið verði frá núverandi stjórnun veiða – dagatakmörkunum – og tekin upp stýring með aflamarki.  Aflahlutdeild verði úthlutað á bát samkvæmt veiðireynslu leyfis sem á þeim eru, en ekki báts eins og kveður á um í lögum um stjórn fiskveiða (1. mgr. 9. gr.).  
Viðmiðunartími verði þrjú bestu árin á veiðitímabilinu 2013 til og með 2018.  
16252088_1215556698531262_7452736848909600363_o2 copy 5.jpg