Opnað fyrir umsóknir um viðbótarúthlutun í makríl

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir um úthlutun um viðbótarheimild í makríl skv. reglugerð nr. 606/2019 um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl. Fiskistofa bendir á að föstudagur er síðasti dagur til að sækja um veiðiheimildir í makríl sem úthlutað verður í næstu viku. 
Sækja þarf um í dag – föstudaginn 26. júlí – ef óskað er eftir úthlutun í næstu viku.