Grásleppuvertíðinni lauk 12. ágúst sl. með veiðum báta í innanverðum Breiðafirði. Vertíðin gekk vel og á það jafnt við aflabrögð og verð til sjómanna.
Stýring á heildarafla útfrá ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar tókst afbragðs vel. Heildarafli 4.974 tonn aðeins 147 tonnum umfram það sem stofnunin lagði til. Hver bátur hafði heimild til veiða í 44 daga, en fjöldi daga ár hvert er ákveðinn m.t.t. áætlunar um þátttöku í veiðunum og aflabragða.
Aflaverðmæti þeirra 240 báta sem stunduðu veiðarnar í ár má ætla að hafi verið nálægt 1,6 milljarði, sem er rúmlega helmings aukning frá síðustu vertíð.
Byrjaði 12 ára á grásleppu
Aflakóngur vertíðarinnar er Hafþór Hafsteinsson á Djúpey BA 151 með 56,2 tonn. Hann stundaði veiðar í innanverðum Breiðafirði og hóf vertíðina um miðjan júní. Öllum afla var landað hjá Þórishólma í Stykkishólmi.
Að sögn Hafþórs var þetta ein besta vertíð sem hann hefur tekið þátt í, en Hafþór er hokinn af reynslu hvað grásleppuveiðar varðar, fór fyrst á vertíð með jafnaldra sínum 12 ára gamall fyrir 48 árum.
Auk Djúpeyjar BA er Hafsvalan í eigu Djúpeyjar ehf.