Smábátaeigendur á Snæfellsnesi fjölmenntu til aðalfundar Snæfells sem haldinn var í Grundarfirði í gær þann 16. september. Á fundinum var helst rætt um strandveiðar, línuívilnun, makríl- og grásleppuveiðar.
Á fundinum kom fram almenn ánægja með fyrirkomulag strandveiða sem breytt var 2018 og lögfest 2019. Samþykkti fundurinn áskorun um að mikilvægt væri að halda áfram á þeirri braut að lagfæra kerfið með því að auka hagkvæmni þess. Fram komu hugmyndir um lengri tíma sem hver róður varir, að heimilt yrði að veiða meira á hverjum degi og fleiri dagar til strandveiða til að velja úr í hverjum mánuði fyrir þá 12 róðra sem heimilaðir væru.
Mikill samhljómur var á fundinum um að endurheimta þau þúsund tonn sem sjávarútvegsráðherra hefur skert línuívilnun um. Ráðherra var harðlega gagnrýndur fyrir að fallast ekki á tillögur LS um hækkun prósentu til línuívilnunar og að hún næði til allra dagróðrabáta minni en 30 brúttótonn þar sem hámarkslengd færi ekki yfir 15 metra. Ívilnun verði 30% við fulla beitningu, 20% við uppstokkun og 10% hjá vélabátum.
Stjórn Snæfells var endurkjörin en hana skipa eftirtaldir
- Örvar Már Marteinsson formaður
- Ásmundur Guðmundsson gjaldkeri
- Bergvin Sævar Guðmundsson meðstjórnandi
- Klemens Sigurðsson meðstjórnarnandi
- Runólfur Kristjánsson ritari