Fundir svæðisfélaga LS – Krókur, Elding, Strandir, Austurland

Strandveiðifélagið KRÓKUR
Aðalfundur Króks verður haldinn mánudaginn 23. september 2019.  Fundurinn verður á Hotel West Aðalstræti 62, Patreksfirði og hefst kl 14:00.
Formaður Króks er Einar Helgason Patreksfirði.
Elding – félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum
Aðalfundur Eldingar verður haldinn þriðjudaginn 24. september 2019.  Fundurinn verður á Hótel Ísafjörður og hefst kl 13:00.
Formaður Eldingar er Ketill Elíasson Bolungarvík.
Smábátafélagið Strandir
Aðalfundur Stranda verður haldinn í Kaffi Galdri á Hólmavík þriðjudaginn 24. september 2019.  Fundurinn hefst kl 19:00 með borðhaldi.
Formaður Stranda er Haraldur Ingólfsson Drangsnesi
Félag smábátaeigenda á Austurlandi
Aðalfundur Félags smábátaeigenda á Austurlandi verður haldinn í Beljanda Brugghúsi Breiðdalsvík fimmtudaginn 26. september 2019.  
Fundurinn hefst kl 17:00.
Formaður félags smábátaeigenda á Austurlandi er Ólafur Hallgrímsson Borgarfirði.