Trillukarl ársins 2019 – Jón Ingvar Hilmarsson

Trillukarl ársins 2019, 
 
Jón Ingvar Hilmarsson frá Djúpavogi.  
Jón Ingvar hefur róið á strandveiðum sl. átta ár og verið með aflahæstu mönnum.  Jón Ingvar lauk nýliðnu strandveiðitímabili með aflameti – 52,4 tonn.  Afrekið er þeim mun glæstara þegar horft er til þess að bátur hans Birta SU-36 er aðeins rúmar 4 brúttórúmlestir.
 

1160459 copy.png

 
Jón Ingvar er fjögurra barna faðir borinn og barnfæddur 
á Djúpavogi.  Sjómaður í húð og hár, þessi dæmigerði 
trillukarl sem fór fyrst á sjó með föður sínum þar sem  afinn var að ljúka sinni sjósókn.  
Þegar aldur leyfði fór hann nokkra túra á togara. En smábátaútgerðin togaði fast í hann sem hann hefur helgað sig sinn sjómannsferil.  
Utan strandveiða rær Jón Ingvar með föður sínum á Tjálfa SU sem gerður er út á net og snurvoð. 
Til hamingju Jón Ingvar