Aðalfundir Reykjaness og Bárunnar

Reykjanes – félag smábátaeigenda á Reykjanesi – 
heldur aðalfund fimmtudaginn 3. október.  
Fundurinn verður í Salthúsinu í Grindavík og hefst kl 17:00.
Kvöldverður í boði félagsins í fundarhléi.
Formaður Reykjaness er Eyþór Reynisson Grindavík
Báran – félag smábátaeigenda í Hafnarfirði og Garðabæ – 
heldur aðalfund laugardaginn 5. október.  
Fundarstaður er Hótel Víking Hafnarfirði (á móti Fjörukránni).  
Fundurinn hefst með borðhaldi kl 12:00.
Formaður Bárunnar er Guðbrandur Magnússon Garðabæ
Með aðalfundum Reykjaness og Bárunnar hafa öll svæðisfélög LS haldið aðalfundi, afgreitt ályktanir til 35. aðalfundar LS, kosið í stjórnir í félögunum og gert upp starfsárið.