Fiskistofa hafnar jöfnum skiptum á makríl

Í tilkynningu sem Fiskistofa sendi frá sér í dag kemur fram að stofnunin hefur synjað fjölmörgum beiðnum um millifærslur í makríl þar sem jöfn skipti við botnfisk koma við sögu.
„Stofnunin telur að flutningur sé óheimill þegar útgerð krókaaflamarksbáts sem hefur makrílheimildir í A-flokki hyggst láta af hendi heimildir í botnfiski í krókaaflamarki í skiptum fyrir makríl til aflamarksskips sem býr yfir markílheimildum í B-fokki., eins og segir á heimasíðu Fiskistofu.