35. aðalfundur Landssambands smábátaeigenda verður haldinn á Grand Hótel 17. og 18. október næstkomandi.
Öll svæðisfélögin 15 hafa nú haldið aðalfundi og samþykkt tillögur sem teknar verða fyrir á aðalfundinum.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa kjörnir fulltrúar svæðisfélaga LS 36 að tölu, stjórn og framkvæmdastjóri.
Öllum félagsmönnum er heimilt að taka þátt í aðalfundinum þar sem þeir hafa málfrelsi og tillögurétt. Þeir sem hafa hug á að mæta verða skráðir sem áheyrnarfulltrúar og er skráning þegar hafin.