35. aðalfundi Landssambands smábátaeigenda lauk í gær með kjöri formanns. Þorlákur Halldórsson Grindavík var einn í kjöri og hlaut hann rússneska kosningu. Þorlákur var varaformaður LS árin 2016 og 2017.
Þorlákur Halldórsson formaður Landssambands smábátaeigenda tekur við af Axel Helgasyni sem gegnt hefur starfinu sl. 3 ár, var kjörinn á aðalfundi 2016.
Þorláki er hér með óskað til hamingju með kjörið og farsældar í starfi.