Ráðherra fundar með stjórn LS

 
 
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og stjórn LS funduðu fyrr í dag.  Fundurinn var haldinn að frumkvæði ráðherra þar sem rædd voru drög að reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020 sem nú er til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.  
 
 
Eins og fram hefur komið er mikil óánægja með ákveðin atriði reglugerðarinnar einkum það sem snýr að fækkun neta.  Að heildarlengd sem hver bátur má hafa í sjó verði aðeins helmingu þess sem verið hefur, fari úr 7.500 m í 3.750 m.  
 
 
Góður andi ríkti á fundinum og voru aðilar sammála um að þörf væri á breytingum.  LS vinnur nú að umsögn um reglugerðina sem send verður í samráðsgáttina á næstu dögum. 
  
 
Frá fundi ráðherra með stjórn LS           
 
                                 Axel Helgason