Snæfell félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi hefur boðað til fundar um grásleppumál nk. fimmtudag 30. janúar. Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu Stykkishólmi og hefst kl 17:00.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur þekkst boð Snæfells að mæta á fundinn. Hann mun ávarpa fundargesti og svara fyrirspurnum.
Á fundinum verður farið yfir drög að reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020 sem mun m.a. innihalda ákvæði um lokun svæða sem ætlað er að draga úr veiðum á sel sem meðafla. Jafnframt verður fjallað um möguleika á að endurheimta MSC vottun grásleppuveiða, markaðsmál og næstu vertíð.
Þar sem hér er um gríðarlegt hagsmunamál fyrir grásleppusjómenn, einstök byggðarlög og grásleppuhrognamarkaðinn er áríðandi að sem flestir mæti á fundinn. Á vertíðinni 2019 var heildarveiði grásleppu um 5.000 tonn þar af veiddist í Breiðafirði tæpur þriðjungur. Mestu var landað í Stykkishólmi um 1.100 tonnum.
Auk sjávarútvegsráðherra verða frummælendur á fundinum frá Snæfelli, LS, sjávarútvegsráðuneytinu og grásleppukavíarframleiðendum.
Varðar málefni fundarins.