Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur fallist á beiðni LS um að hlé á grásleppuveiðum teljist ekki til veiðidaga. Ákvæði um samfellda talningu veiðidaga frá upphafi veiða mun ekki eiga við ef skipstjóri eða áhöfn verður fyrirskipað að fara í sóttkví eða einangrun.
Breytingin er gerð til að draga úr afleiðingum sem COVID-19 gæti haft á grásleppuveiðar. Sóttkví eða sýking skipverja hefði að óbreyttu orðið til þess að veiðidagar hefðu talið meðan viðkomandi væri forfallaður.
Breyting á reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020 þessa efnis er væntanleg og mun gilda frá 20. mars.