Strandveiðar á uppstigningardag

Að gefnu tilefni er vakin athygli á að nú eru strandveiðar heimilar á uppstigningardegi.  Samkvæmt reglugerð eru veiðarnar nú heimilar á almennum frídögum sem bera upp á strandveiðidaga – mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag.  
Þetta þýðir að í ár er heimilt að fara til standveiða á uppstigningardag, annan í hvítasunnu, 17. júní og á frídegi verslunarmanna.