Á tímabilinu 1. júní til 19. júní hafa verið seld 4.042 tonn af þorski gegnum fiskmarkaðina. Það er veruleg aukning frá því á sama tíma í fyrra, þegar magnið var 2.242 tonn.
Helmingur magnsins í ár eða 51% er veitt á handfæri, sem sýnir mikilvægi þess afla fyrir markaðinn.
Verð nú er nokkuð lægra en í fyrra, 327 kr/kg á móti 270 kr/kg sem fengist hefur að meðaltali fyrir óslægðan færaþorsk. Þegar tekið er mið af stöðu krónunnar er munurinn enn meiri eða um 7%.
Grafið sem hér fylgir sýnir verð og magn tímabilið 1. júní – 19. júní.
unnið upp úr RSF