Mikill verðmunur milli ára

 
 
Á tímabilinu 1. júní til 19. júní hafa verið seld 4.042 tonn af þorski gegnum fiskmarkaðina.  Það er veruleg aukning frá því á sama tíma í fyrra, þegar magnið var 2.242 tonn.
 
 
Helmingur magnsins í ár eða 51% er veitt á handfæri, sem sýnir mikilvægi þess afla fyrir markaðinn.  
 
 
Verð nú er nokkuð lægra en í fyrra, 327 kr/kg á móti 270 kr/kg sem fengist hefur að meðaltali fyrir óslægðan færaþorsk.  Þegar tekið er mið af stöðu krónunnar er munurinn enn meiri eða um 7%.   
 
 
Grafið sem hér fylgir sýnir verð og magn tímabilið 1. júní – 19. júní.
 
unnið upp úr RSF