Sjávarútvegsráðherra – engum aflaheimildum verður bætt við

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra greindi frá því, í viðtali í 10 fréttum Sjónvarps í gærkveldi, að ekki yrði bætt við aflaheimildum til strandveiða.  Ákvörðun ráðherra veldur gríðarlegum vonbrigðum.  Á sjöttahundrað útgerða verða að hætta veiðum þegar þriðjungur er eftir af veðidögum í ágúst. 
Screenshot 2020-08-19 at 01.22.05 (1).png
Í viðtalinu kom fram að heimildir hans til að auka veiðiheimildir til strandveiða væru bundnar við 5,3% pottinn.  Þar væru hins vegar engar veiðiheimildir á lausu og því yrði ekki bætt við.
Eins og fram hefur komið ákvað ráðherra með reglugerð þann 21. apríl sl. að skerða aflaviðmiðun til strandveiða.  LS óskaði eftir að ráðherra leiðrétti reglugerðina og færði hana í sama horf og var 2019.  Við því varð hann ekki.
Ennfremur er rétt að halda því til haga að LS óskaði eftir að ónýttar aflaheimildir frá strandveiðum 2019 bættust við heimildir þessa árs.  Því hafnaði ráðherra einnig og sagði lög ekki heimila færslu milli ára til strandveiða.