Aðalfundur Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar var haldinn á Sauðárkróki sunnudaginn 20. september. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum var opnað fyrir umræður um þau mál sem nú eru í deiglunni hjá smábátaeigendum. Þær leiddu til að samþykktar voru eftirfarandi ályktanir:
Dragnót
Aðalfundur Drangeyjar skorar enn einu sinni á stjórnvöld að virða ítrekaðar óskir sveitarstjórnar Skagafjarðar, Landssambands smábátaeigenda og Drangeyjar um taka upp fyrri takmarkanir á veiðum með dragnót á innanverðum Skagafirði þannig að þær verði óheimilar innan línu sem dregin er milli Ásnefs í vestri í norðurhorn Þórðarhöfða í austri.
Grásleppuveiðar
Aðalfundur Drangeyjar fordæmir þau vinnubrögð sem sjávarútvegsráðherra hafði við framkvæmd grásleppuveiða á þessu ári. Með þeim var grásleppuútgerðum freklega mismunað og skemmdarverk unnið á stjórnkerfi þessara veiða.
Strrandveiðar
Aðalfundur Drangeyjar mótmælir harðlega stöðvun strandveiða þessa árs áður en lögvörðu veiðitímabili þeirra lauk. Þá ítrekar fundurinn fyrri samþykktir sínar um að veiðitímabil strandveiða verði valkvætt í fjóra mánuði samfellt, alls 48 veiðidagar á tímabilinu 1. apríl til 30. september.
5,3% potturinn
Aðalfundur Drangeyjar mótmælir þeim hugmyndum sem kynntar eru í nýju frumvarpi um atvinnu- og byggðakvóta um að festa strandveiðar inn í „heildarpotti sem tekur mið af aflamarkskerfinu. Með því er verið að þvinga sóknarmarksfyrirkomulag strandveiðanna inn í aflamarkskerfið.
Þakkir til sveitarstjórnar
Aðalfundur Drangeyjar lýsir yfir ánægju með framgöngu atvinnuveganefndar sveitarstjórnar Skagafjarðar í tengslum við úthlutun byggðakvóta þessa árs. Hins vegar hvetur félagið til þess að í framtíðinni verði þessum heimildum einungis úthlutað á skip undir 50 lestum.
Byggðakvóti
Aðalfundur Drangeyjar styður þær hugmyndir stjórnvalda að byggðakvóta til byggðarlaga skuli dreift á grundvelli meðaltals síðustu 3 eða 10 ára eftir því hvort meðaltalið er hagstæðara fyrir viðkomandi byggðarlag. Hins vegar telur fundurinn að ekki séu rök fyrir því að miða úthlutunina við íbúafjölda byggðarlags.
Rannsóknaraðferðir gagnrýndar
Aðalfundur Drangeyjar skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að hlutlaus úttekt verði gerð á ráðgjöf og rannsóknaraðferðum Hafrannsóknarstofnunar enda ríkir gríðarlegt vantraust sjómanna og útgerðarmanna innan félagsins á starfsemi stofnunarinnar.
Stjórn Drangeyjar
Magnús Jónsson formaðurHjálmar H. Hjálmarsson varaformaðurÁsta Ólöf Jónsdóttir gjaldkeriÞorvaldur Steingrímsson ritariSigurjón Þórðarson meðstjórnandi