Aðalfundur Smábátafélagsins Eldingar var haldinn á Hótel Ísafirði þann 20. september sl.
Að loknu ávarpi formanns Ketils Elíassonar var gengið til hefðbundinnar dagskrár.
Ályktanir til 36. aðalfundar LS:
- Aðalfundur Eldingar hafnar öllum hugmyndum um kvótasetningu á grásleppu.
- Aðalfundur Eldingar krefst þess að öllum verði tryggðir 12 dagar á strandveiðum þá mánuði sem strandveiðar eru heimilaðar.
- Aðalfundur Eldingar hafnar þeim tillögum sem settar eru fram af sjávarútvegsráðherra í frumvarpi að lögum (5,3 prósent) að ónýtt línuívilnun fari inn í byggðakvóta. Elding fer fram á að það sem gengur af línuívilnun fari til aukningar krókaveiða, þar með talið strandveiða.
- Línuívilnun verði sett á alla báta sem eru undir 30 tonnum, 15 metrum sem stunda dagróðra.
- Aðalfundur Eldingar krefst þess að GSM samband verði þegar bætt út af öllum Vestfjörðum. Hér er um öryggismál að ræða.
- Aðalfundur Eldingar krefst þess að flotvörpuveiðar við loðnuveiðar verði tafarlaust bannaðar. Það hefur sýnt sig í aukningu grásleppuafla að þetta veiðarfæri skaðar aðrar fisktegundir.
- Aðalfundur Eldingar styður hvalveiðar.
Stjórn Eldingar
Kristján Andri Guðjónsson formaðurPáll BjörnssonRúnar GuðmundssonBæring GunnarssonKarl Guðmundur KarlssonÞorgils Þorgilsson.
Fulltrúi Eldingar í stjórn LS er Þórður Sigurvinsson frá Suðureyri