Aðalfundur LS – dagskrá

 
 
Á fundi stjórnar LS sem haldinn var sl. mánudag var ákveðið að dagskrá 36. aðalfundur félagsins (fjarfundur) yrði með eftirfarandi hætti:
 
1. Setning fundar – Þorlákur Halldórsson formaður
 
2. Skýrsla framkvæmdastjóra – Örn Pálsson
 
3. Ársreikningur 2019
 
4. Kynning ályktana
 
5. Tillaga um frestun fundar þar til stjórn boðar að fundi skuli framhaldið
 
 
Einhugur var í stjórn að reyna allt sem hægt væri til að síðari hluti fundar yrði með hefðbundnum hætti.
 
 
Félagsmenn sem vilja fylgjast með fundinum verða að skrá sig sem áheyrnarfulltrúar.