Að undanförnu hefur umræða farið vaxandi um tugaprósenta aukningu í útflutningi á óunnum þorski. Á fyrstu níu mánuðum ársins kemur þetta berlega í ljós þar sem 80% meira hefur verið flutt út á tímabilinu heldur en sömu mánuði á árinu 2019.
Heildarmagn þessara 5 fisktegunda fyrstu níu mánuðina – 22% aukning milli ára2020: 38,9 þúsund tonn2019: 32,0 þúsund tonn
Verðmæti
Heildarverðmæti2020: 12,6 milljarðar2019: 9,1 milljarðar
Í Noregi hefur sama þróun átt sér stað, sífellt meira flutt til fullvinnslu í öðrum löndum, sem hefur leitt til þess að útflutningsverðmæti minnkar. Fyrstu átta mánuðina var það 10% lægra en á sama tímabili í fyrra.
Hvort við fetum í fótspor Norðmanna skal ekki fullyrt hér. Það er aftur á móti umhugsunarefni hvort sú mikla tækni og þekking sem hér er nær að svara þessari samkeppni.
Málefnið er nú rætt í atvinnuveganefnd Alþingis og hefur nefndin skoðunar svör fimm ráðuneyta við spurningum sem hún sendi þeim fyrir réttu ári.
Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður atvinnuveganefndar tjáði sig um málefnið í viðtali við Morgunblaðið sl. föstudag.
LS er meðal aðila sem atvinnuveganefnd hefur boðað til sín til fundar um þá stöðu sem nú blasir við.