Dagatal LS 2021

Félagsmönnum og velunnurum hefur verið sent almanak LS 2021.  
Auk almennra upplýsinga sem tilheyra almanaki eru upplýsingar stílaðar til smábátaeigenda. Árdegisflóð, stofndagar svæðisfélaga LS og dagsetningar aðalfunda þeirra, ásamt fleiru.
Hönnuður dagatalsins er og hefur verið frá upphafi Guðmundur Bjarki Guðmundsson.  Ljósmyndari er Erlendur Guðmundsson.  Þeim er hér með þakkað fyrir vel unnin störf.  
Almanakið hefur verið gefið út frá árinu 2003 og er því 2021 það 19. í röðinni.
Að vanda prýða uppskriftir girnilegra fiskrétta almanak LS.  Í janúar er það „Lúðugrillpinnar strandveiðisjómannsins sem Þröstur Albertsson, Ólafsvík, býður upp á.
Screenshot 2021-01-18 at 21.09.04.png
Screenshot 2021-01-18 at 21.08.33.png