Strandveiðigjald verði aflagt

Inga Sæland formaður Flokks fólksins mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um Fiskistofu – niðurfellingu strandveiðigjalds.  Auk hennar er flutningsmaður að frumvarpinu Guðmundur Ingi Kristinsson Flokki fólksins.
Að lokinni fyrstu umræðu um frumvarpið voru greidd atkvæði um það og því vísað til atvinnuveganefndar.
Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a. 
„Útgerðir strandveiðibáta eru lítil fyrirtæki og hafa einungis tekjur af strandveiðum fjóra mánuði á ári. Á því tímabili mega útgerðir einungis gera bátana út 12 daga í hverjum mánuði, eða alls í 48 daga. Strandveiðar við Ísland hafa þó fest sig í sessi og þær skila sínu til þjóðarbúsins eins og framangreindar tölur gefa til kynna. Bæði reynsla og allar tölur sýna að mannlíf í höfnum sjávarbyggða allt umhverfis landið væri vart svipur hjá sjón ef þessa útvegs nyti ekki við. 


Strandveiðigjaldið svokallaða er sértækur skattur sem lagður er á einn útgerðarflokk umfram aðra. Engin sambærileg gjöld eru lögð á skip sem stunda aðrar veiðar en strandveiðar. Þetta felur í sér ójafnræði í ljósi þess að eigendur strandveiðibáta greiða lögbundin hafnargjöld eins og aðrir. Því er með þessu frumvarpi lagt til að ákvæði um strandveiðigjaldið í lögum um Fiskistofu verði fellt brott.