Gildi-lífeyrissjóður hefur birt yfirlit um starfsemina 2020. Raunávöxtun varð 9,7% sem er lækkun frá 2019 sem skilaði 12,1%.
Í lok síðasta árs nam hrein eign sjóðsins 764 milljörðum, hafði hækkað um 103 milljarða á einu ári, eða 15,6%.
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn 15. apríl kl. 17:00. Stefnt er að því að halda hann á Grand Hótel, en vegna Covid-19 eru líkur á að hann verði að hluta eða að fullu rafrænn.