Samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegsráðherra hefur undirritað verða reglur um strandveiðar óbreyttar frá síðasta ári.
Strandveiðar hefjast 3. maí næstkomandi. Upphafsaflaviðmiðun í þorski verður 10 þúsund tonn, 1.000 tonn af ufsa og 100 tonn af gullkarfa, samtals 11.100 tonn af óslægðum botnfiski.
Sjá reglugerð um strandveiðar fiskveiðiárið 2020 / 2021.
Meðfylgjandi umfjöllun um strandveiðar birtist í Morgunblaðinu í dag.