500 strandveiðileyfi

Alls hafa 500 bátar fengið leyfi til strandveiða sem er fjölgun um 37 frá í fyrra.  Að lokinni fyrstu vikunni er aflaaukning á öllum svæðum nema D.  Þar standa aflatölur í stað miðað við tvö síðustu ár – 150 tonn.
Fjöldi landana er komin yfir eittþúsund, en voru 619 eftir fyrstu viku strandveiða 2020.  Munurinn liggur að mestu í að nú hefur víðast hvar verið einmuna blíða á miðunum, en í fyrra byrjaði tímabilið með brælu.  Jafnframt munar um að 50 fleiri bátar hafa hafið veiðar nú en í fyrra.
Afli þeirra 387 báta lönduðu í vikunni er 702 tonn, þar af 674 tonn þorskur.
Screenshot 2021-05-07 at 11.36.46.png