Helstu rökin fyrir því að óska eftir að rauðir dagar séu settir á ný í reglugerð um strandveiðar eru eftirfarandi:
• Veruleg fjölgun báta í upphafi vertíðar.• 162% aflaaukning fyrstu þrjá dagana miðað við í fyrra – úr 225 tonnum í 588 tonn.• Veiðarnar stöðvaðar 19. ágúst í fyrra.• Ekki tryggt enn sem komið er að 48 dagar verði niðurstaðan.
Með breytingunni er hægt að teygja sóknina sem lengst inn í ágúst þegar að jafnaði fæst hærra verð en í maí.
Krafa LS er óbreytt að strandveiðar verði heimilaðar í 48 daga. Þegar það verður tryggt er hægt skutla rauðum dögum út og setja inn góða þætti sem gera kerfið betra.