29% hærra verð

Samantekt LS á verði þorsks sem veiddur var á handfæri sýnir að verð í maí er 29% hærra en það var á sama tíma í fyrra.  
Gegnum fiskmarkaði landsins fóru 1.927 tonn af óslægðum handfæraþorski á fyrstu 12 róðradögum strandveiða sem er 4% aukning milli ára.
Meðalverð í ár er 271 kr/kg, 61 króna hækkun.
Sannarlega góðar fregnir fyrir strandveiðisjómenn.
Screenshot 2021-05-26 at 15.09.33.png