Í Bændablaðinu í dag birtist grein eftir Arthur Bogason formann LS.
Hvar eru 500 þúsund tonnin?
Þar rifjar Arthur m.a. upp að í „Svörtu skýrslunni sem gefin var út 1975, var ástandi þorskstofnsins lýst á þann veg að hann væri við dauðans dyr. Það reyndist dauðans vitleysa. Örfáum árum síðar brast á metvertíð á Íslandsmiðum.
Jafnframt hefði komið fram í skýrslunni að hámarksafrakstur þorskstofnsins væri nær 500 þús. tonn á ári. Þá eru talin upp skilyrði sem þurfi að uppfylla til þess að ná þeim afla.