Veðrið skiptir öllu máli

 

 

Sú vísa verður sjálfsagt aldrei of oft kveðin um hvað veðrið er öflugt stjórntæki við veiðar smábáta.  Sóknardagar strandveiðibáta nú ár staðfesta þetta afar vel.

 

Í maí sl. tókst 135 bátum að ná 12 dögum til veiða á móti 41 í maí í fyrra.  Þessu var svo öfugt farið nú í júní þegar 45 bátar náðu 12 róðrum á móti 155 í þeim mánuði 2020.

 

Nýting daga20212020
maí með 12 daga135 Bátar41 Bátar
júní með 12 daga47 Bátar155 Bátar
maí – júní, 24 dagar27 Bátar33 Bátar

 

 

Elli SF aflahæstur

Aflahæstur strandveiðibáta er Elli SF frá Hornafirði með 24,8 tonn í 21 róðri.  Að sögn Heiðars Erlingssonar skipstjóra var maí erfiður þá hvarf allur fiskur.  Í júní hefur sjórinn lifnað við, komin síld og mikið af ufsa á slóðina.  Þorskurinn farinn að taka, en á móti kæmi að veðrið í júní hefði ekki leyft marga róðra, endalaus suðvestan strekkingur.    

 

Heiðar sagði útgerðina vera fjölskylduverkefni, þar sem tvítugur sonur hans Hafþór væri jafnframt að róa Ella SF. 

 

 

 

Sjá allt um strandveiðar