Eins og fram hefur komið sendi LS erindi til sjávarútvegsráðherra.pdf þar sem óskað var eftir að almennur byggðakvóti skipa sem fyrirsjáanlegt væri að ekki yrði heimilt að flytja yfir á næsta ár yrði nýttur til strandveiða. Máli sínu til stuðnings benti LS m.a. á eftirfarandi ákvæði í 7. grein reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa (undirstrikun er LS):
„Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fiskveiðiárið í fimm áföngum, 1/5 hverju sinni enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils sem fram kemur í 1. mgr. þessarar greinar, fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er Fiskistofu heimilt að úthluta áunnu aflamarki fiskveiðiársins 2020/2021 á fiskveiðiárinu sem hefst 1. september 2021, enda hafi viðkomandi skip ekki flutt meira aflamark frá skipinu en til þess í lok fiskveiðiársins á undan.
Ráðuneytið hefur svarað erindi LS þar sem ekki er fallist á beiðni félagsins. Hér er mynd af meginefni bréfsins.
LS mun á næstu dögum fara nánar í saumana á svari ráðuneytisins.