Strandveiðum 2021 er lokið þeim þrettándu í samfelldri röð þeirra.
Aldrei í sögu strandveiða hefur afli verið meiri – alls 12.146 tonn, þar af þorskur 11.159 tonn. Aflaverðmæti þessa afla eru um 4 milljarðar.
Aflahæstur báta á strandveiðum var Agla ÁR með 51.115 kg. Skipstjóri og eigandi er Aðalbjörn Jóakimsson. Agla var á veiðisvæði A.
Á svæði B var Jón Magg ÓF með 38.597 kg, Lundey ÞH á svæði C með 37.798 kg og á svæði D var Snjólfur SF með mestan afla 46.048 kg.