Klettur, Fontur, Snæfell

Ekkert lát á tilkynningum um aðalfundi svæðisfélaga LS.
Klettur
Aðalfundur Kletts – félag smábátaeigenda Fjallabyggð – Tjörnes, verður nk. sunnudag 19. september.
Fundurinn verður haldinn á veitingahúsinu Strikinu á Akureyri, Skipagötu 14, 5. hæð.  Fundurinn hefst kl 11:00.
Formaður Kletts er Andri Viðar Víglundsson 
Fontur 
Aðalfundur Fonts – félag smábátaeigenda á NA-landi verður nk. sunnudag 19. september. Fundarstaður er veitingastaðurinn Báran á Þórshöfn.  Fundurinn hefst kl 18:00.
Formaður Fonts er Halldór Rúnar Stefánsson 
Snæfell
Aðalfundur Snæfells – félags smábátaeigenda á Snæfellsnesi, verður miðvikudaginn 22. september.  Fundurinn verður í húsnæði Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði og hefst kl 17:00.  
Formaður Snæfells er Runólfur Jóhann Kristjánsson 
Stjórnir félaganna hvetja sem flesta til að mæta.  Drekka í sig fróðleik sem framreiddur verður, ræða það sem er efst á baugi, koma með tillögur og senda skilaboð til almennings og verðandi alþingismanna um mikilvægi þess að auka veiðirétt og bæta starfsumhverfi smábátaútgerðarinnar.

Formaður LS og framkvæmdastjóri mæta á fundina.