Hrollaugur gengur til liðs við LS

Á aðalfundi smábátafélagsins Hrollaugs á Höfn sem haldinn var í gær 3. október var samþykkt að ganga aftur til liðs við Landssamband smábátaeigenda.
Samþykkt þeirra Hrollaugsmanna er einkar ánægjuleg þar sem hún markar á ný sameiningu smábátaeigenda allt í kringum landið, keðja sem rofnaði árið 2017 hefur nú endurheimt alla hlekki sína.
Í frétt frá fundinum segir m.a.:
Félagar Hrollaugs telja það tímabært og mikilvægt að þétta raðir smábátaeigenda og ganga til liðs við Landssambandið á ný og leggja þar sitt að mörkum við áframhaldandi baráttu fyrir sanngirni og réttlæti í íslenskum sjávarútvegi núverandi og komandi kynslóðum til heilla og auka þar með samtakamátt og slagkraft Landssambandsins.
Mikill baráttuandi ríkti á aðalfundi Hrollaugs og félagsmenn bjartsýnir á komandi tíma. 
Fráfarandi stjórn voru færðar miklar þakkir fyrir störf sín undanfarinna 5 ára og ný stjórn kjörin með miklu lófaklappi, eins og segir á Facebooksíðu Smábátafélagsins Hrollaugs á Höfn.
Stjórn Hrollaugs er þannig skipuð:
Karl Heimir Einarsson formaður, 
Birnir Ásbjörnsson gjaldkeri 
Sævar Knútur Hannesson ritari. 
Eitt fyrsta embættisverk Karls Einars var að setja sig í samband við formann Landssambands smábátaeigenda og tilkynna honum um samþykkt þeirra Hrollaugsmanna.   
Strandveiðisjómenn í Hrollaugi IIII.jpg